Varasöm Hálka

Varasöm hálka

Núna er mjög varasamt að vera á ferðinni vegna mikillar hálkumyndunnar í sveitarfélaginu.

Unnið er að því að salta og sanda en gengur hægt þar sem rignir niður og myndar hálku jafnharðan aftur.

Biðjum við íbúa að hafa þetta í huga og fara sérstaklega varlega ef þeir þurfa að vera á ferðinni.