Vátryggingaútboð Reykjanesbæjar 2021-23

Tryggingar
Tryggingar

Reykjanesbær og tengdir aðilar óska eftir tilboðum í vátryggingar fyrir tímabilið 2021 – 2023. 

Um er að ræða eftirfarandi tryggingar: 

 Lög- og samningsbundnar tryggingar:

  • Brunatrygging fasteigna
  • Ábyrgðartrygging ökutækja
  • Slysatrygging launþega

 Aðrar tryggingar:

  • Húseigendatryggingar
  • Lausafjártryggingar
  • Víðtækar eignartryggingar
  • Húftrygging vinnuvéla
  • Bílrúðutryggingar
  • Kaskótrygging ökutækja
  • Ábyrgðartrygging atvinnureksturs
  • Slysatryggingar barna til 18 ára aldurs í skóla- og tómstundastarfi
  • Slysatryggingar
  • Hópslysatryggingar
  • Húftrygging skipa
  • Áhafnartryggingar
  • Ferðatryggingar

Útboðsgögn er hægt að fá með því að senda tölvupóst á gudmundurm@consello.is frá og með 19. október 2020. Tilboðum skal skila í ráðhús Reykjanesbæjar, Tjarnargötu 12, fyrir kl. 13:30, föstudaginn 20. nóvember 2020 og verða þau opnuð þar í viðurvist þeirra bjóðenda sem þar mæta.

Heimilt er að skila tilboðum með  tölvupósti á opnunarstað tilboða, ef þau berast áður en skilafrestur tilboða rennur út enda hafi öll gögn, sem fylgja eiga tilboði, verið póstlögð með ábyrgðarsendingu a.m.k. degi áður en opnun tilboða fer fram.