- Þjónusta
- Velferð og stuðningur
- Menntun og fræðsla
- Skipulags-, bygginga- og umhverfismál
- Íþróttir og tómstundir
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- Mitt Reykjanes
Háaleitisskóli á Ásbrú hefur fengið veglegar gjafir frá tæknifyrirtækjunum Verne Global og Ofar sem munu styrkja kennslu og skapa nemendum enn fleiri tækifæri til skapandi náms. Meðal þess sem skólinn fékk eru þrívíddarprentarar, sýndarveruleikagleraugu, fartölvur og annar búnaður sem nýtist vel í fjölbreyttu skólastarfi.
Aðdragandinn að gjöfinni var óvenjulegur en samtal milli nágranna varð upphafið að því að fulltrúar Verne Global kynntust starfsemi skólans og áherslum hans. Í kjölfarið kviknaði hugmyndin að því að styðja við skólann með tækjum sem nýtast bæði í kennslu og verkefnavinnu nemenda. Verne Global fékk síðan fyrirtækið Ofar til liðs við sig og saman afhentu fyrirtækin skólanum veglega tækjagjöf.
Háaleitisskóli hefur lagt aukna áherslu á skapandi lausnaleit, nýsköpun og tæknimennt þar sem nemendur fá tækifæri til að læra með virkri þátttöku og fjölbreyttum verkefnum. Nýi búnaðurinn mun styrkja þá vegferð enn frekar og skapa fleiri möguleika til að vinna með hönnun, forritun, þrívíddarvinnslu og sýndarveruleika í námi.
Við í Reykjanesbæ fögnum þessum öfluga stuðningi við skólastarfið og þökkum Verne Global og Ofar kærlega fyrir gjöfina. Samstarf atvinnulífs og skóla skapar dýrmæt tækifæri fyrir nemendur og styrkir enn frekar öflugt skólastarf í Reykjanesbæ.
