Vel sóttur samráðsfundur um íþróttamál

Frá samráðsfundi um íþróttamál.
Frá samráðsfundi um íþróttamál.

Íþróttafulltrúi Reykjanesbæjar og Íþrótta-og tómstundaráð Reykjanesbæjar stóðu fyrir samráðsfundi um stöðu íþróttamála í Reykjanesbæ á Nesvöllum í gærkveldi sem var vel sóttur.

Á fundinum var farið yfir þær framkvæmdir sem bæjarfélagið hefur staðið fyrir á undanförnum árum í uppbyggingu íþróttamannvirkja.Í framhaldi voru umræður í hópum um áherslur til áframhaldandi uppbyggingar á næstu árum.

Rætt var um rekstrar- og styrktarsamninga við íþróttahreyfinguna og hvort þeir hafi skilað tilætluðum árangri. Fjallað var um stuðning við innra starf íþróttahreyfingarinnar og samstarf hennar og bæjaryfirvalda.

Í lokin kynntu umræðuhópar niðurstöður sínar.

íþróttaþing