Viðgerðir á grjótvörn boðnar út

Reykjanesbær í vetrarham.
Reykjanesbær í vetrarham.

Reykjaneshöfn og Vegagerðin óska eftir tilboðum í að lagfæra skemmdir á grjótvörn á enda norður hafnargarðs Grófarhafnar og skemmd á öldubrjót Njarðvíkurhafnar.
Verkefnið felst í að gera leið að þessum skemmdum, opna garðana (grjótvörnina) eins og þörf er á til að byggja upp garðana að nýju á þessum stöðum.
Verkinu skal lokið eigi síðar en 1. júní 2021.

Skoða nánar

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu og heildartilboðsupphæð.