Víkingaskipið Íslendingur verður leiksvið í nýju leikhúsi í Reykjanesbæ

Víkingaskipið verður leiksvið.
Víkingaskipið verður leiksvið.

Víkingaskipið Íslendingur verður leiksvið í nýju leikhúsi sem hefur starfsemi í Reykjanesbæ í vor í samstarfi við Víkingaheima.

Fyrsta sýningin verður hinn rómaði einleikur Ferðir Guðríðar eftir Brynju Benediktsdóttir, í nýrri uppfærslu Maríu Ellingsen. Frumsýning verður 9.maí og er miðasala hafin.

"Það er gaman að byrja með sögu víkingakonu og landkönnuðar og þetta einfalda snilldarverk Brynju, Ferðir Guðríðar liggur beint við. Það er líka góð tilfinning að minnast Brynju á þennan hátt. Hún var ávallt að ryðja brautina og ég er viss um að ef hennar nyti við væri hún mætt hér til að opna nýtt leikhús. " segir María Ellingsen. "Sýningin fór upphaflega í sigurför um Bandaríkin og Kanda í tilefni árþúsundamótanna og það sýndi sig að þessi leikræna túlkun var til þess fallin að vekja áhuga á þessum merkilega þætti Íslendingasagnanna sem tengir okkur og Vesturheim. Ekki er hægt að finna betri stað til að fá að upplifa söguna um Guðríði en um borð í Íslendingi en áhorfendur munu ganga um borð og fara í þetta ferðalag með Guðríði sem gengur um skipið og segir sögu sína sem hefst á ferðalagi frá Íslandi vestur um haf og endum á suðurgöngu Guðríðar, þar sem hún hittir páfann í Róm. En eins og Brynja sagði í viðtali við Morgunblaðið fyrir nokkrum árum að þótt efni leiksins byggðist á ferðum þessarar víðförlustu konu miðalda væri verkið í raun ekki ferðasaga, heldur myndar ramma um sögu konu í hættulegum heimi, sögu um þann sem þorir að fara óhefðbundnar leiðir og taka á þeim sorgum og sigrum sem því fylgir."

Að leikhúsinu standa feðgarnir Einar Benediktsson og Pétur Einarsson og fleiri sem sáu fyrir sér að uppálagt væri að leika sögur víkinganna um borð í víkingaskipinu Íslendingi og efla þannig menningartengda ferðamennsku á staðnum. Þórunn Clausen leikur Guðríði, Snorri Freyr Hilmarsson hannar leikmynd, Björn Bergsteinn Guðmundsson lýsir og Filippía Elíasdóttir hannar búninga.

Víkingaheimar opnuðu fyrir tæpu ári síðan í glæsilegu nýju húsnæði þar sem skipið Íslendingur, völundarsmíð Gunnars Marel Eggertssonar, er miðpunkturinn en auk þess er þar vönduð sýning um landafundi íslendinga og veitingahús.

Fyrsti evrópski Ameríkumaðurinn
Guðríður Þorbjarnardóttir er sennilega ein af athyglisverðustu og mikilvægustu persónum í íslenskri sögu. Guðríður kvæntist Þorsteini, syni Eiríks rauða, og þau bjuggu saman í Lýsufi