Hin árlega vorhreinsun Reykjanesbæjar

Vorhreinsun 2022 – bærinn okkar, ábyrgðin okkar.

Hin árlega vorhreinsun Reykjanesbæjar hefst 6. maí og stendur til 16. maí.

Við hvetjum alla íbúa til þess að taka fagnandi á móti vorinu og leggja lið við hreinsun á bænum eftir veturinn. Með því að hreinsa rusl, snyrta tré og runna í garðinum okkar hvetjum við aðra til að taka til hendinni. Tökum sjálf frumkvæðið og kíkjum út fyrir lóðamörkin, á næsta göngustíg eða nálæg útivistarsvæði. Hreinsunardagur í götunni eða hverfinu býður upp á skemmtilega samveru með fjölskyldunni og nágrönnum.

Ef íbúar óska eftir aðstoð við að fjarlægja það sem tilfellur á þessum dögum, þá er hægt að hafa samband við Þjónustumiðstöð í síma 420 3200. Opið er í Þjónustumiðstöð frá 07:00 til 16:00.

Íbúar þurfa sjálfir að koma spilliefnum í endurvinnslustöð sem og timbri, málmum og öðru en lífrænum garðaúrgangi. Ekki verður fjarlægt rusl af byggingarlóðum.

Margir garðeigendur hafa komið sér upp aðstöðu til moltugerðar og nýtist garðaúrgangur vel hjá þeim. Þeir sem vilja verða sjálfbærir og umhverfisvænir geta nálgast upplýsingar víða á veraldarvefnum en ágætis grein um moltugerð er að finna á vef náttúrulækningafélags Íslands

Við hvetjum íbúa til að nýta þessa daga til hreinsunar á görðum sínum og snyrta einnig tré og runna sem vaxa við gangstéttar og göngustíga.

Umhverfismiðstöð Reykjanesbæjar