Aðeins Garðabær og Reykjanesbær skila hagnaði

Horft yfir Reykjanesbæ
Horft yfir Reykjanesbæ

Í umfjöllun Morgunblaðsins miðvikudaginn 9. maí eru bornir saman ársreikningar átta stærstu sveitarfélaga á landinu. Þar kemur m.a. fram að aðeins tvö sveitarfélög af átta stærstu skila hagnaði af bæjarsjóði (A-hluta) en það eru Garðabær og Reykjanesbær.

Í Umfjöllun um Reykjanesbæ segir: 
"Reykjanesbær er meðal þeirra sveitarfélaga sem hafa átt í miklum fjárhagslegum erfiðleikum og fengið aukaframlag úr Jöfnunarsjóði til að greiða úr þeim.  Ársreikningur Reykjanesbæjar ber hins vegar með sér að reksturinn hafi gengið vel í fyrra og var rekstrarafgangur upp á rúmlega 1,3 milljarða fyrir fjármagnsliði á árinu. Reykjanesbær og Garðabær voru einu sveitarfélögin í hópi átta stærstu sem skiluðu jákvæðri rekstrarniðurstöðu af A-hluta bæjarsjóðs í fyrra. Í Reykjanesbæ var afgangurinn 33,3 milljónir. Hjá bæjarsjóði Garðabæjar var hann hins vegar rúmlega 284 milljónir og einnig varð afgangur af samstæðunni hjá Garðabæ í fyrra upp á 352 milljónir."