Áfram boðið upp á sálfræðiþjónustu í FS

Frá undirritun framlengingar samnings. Efri röð frá vinstri Einar Trausti Einarsson, yfirsálfræðing…
Frá undirritun framlengingar samnings. Efri röð frá vinstri Einar Trausti Einarsson, yfirsálfræðingur á Fræðslusviði Reykjanesbæjar, Kristján Ásmundsson skólameistari FS, Helgi Arnarson fræðslustjóri Reykjanesbæjar. Neðri röð frá vinstri Kristín Reynisdóttir sálfræðingur hjá Reykjanesbæ, Sonja Sigurðardóttir fjármálastjóri FS og Guðlaug M. Pálsdóttir aðstoðarskólameistari FS

Reykjanesbær og Fjölbrautaskóli Suðurnesja hafa framlengt samstarfssamning sinn um sálfræðiþjónustu við skólann. Boðið var upp á þjónustuna í fyrravetur og þótti ljóst að hún var mjög mikilvæg fyrir nemendur skólans. Mikil ánægja ríkir því með áframhaldandi samstarf.  Skólaþjónusta Fræðslusviðs Reykjanesbæjar mun sinna sálfræðiþjónustunni.

Samningurinn, sem er til tveggja ára, nær til sálfræðiþjónustu sem er nemendum skólans að kostnaðarlausu. Boðið er upp á einstaklingsviðtöl fyrir nemendur, þar sem áhersla er lögð á ráðgjöf, fræðslu og stuðning. Tilgangur þjónustunnar er að stuðla að almennri velferð nemenda skólans.

Foreldrar og nemendur eru hvattir til að kynna sér þjónustuna betur á vef Fjölbrautaskóla Suðurnesja.