Álversframkvæmdir í Helguvík að komast aftur í gang

Frá Helguvík
Frá Helguvík

„Stærstu fréttirnar í atvinnumálum sem ég hef að segja ykkur eru þessar; Það er komin efnisleg niðurstaða í samninga Noðruáls og HS orku um útvegun orku til álvers í Helguvík.  Stærsta hindrunin er þá frá í lok maraþon hindrunarhlaups. Ég þykist þess fullviss að það standi ekki á ríkisstjórninni að klára málið sín megin, fremur en sveitarfélögum. Munum að umhverfisvænustu álver í heiminum eru á Íslandi og við sláum hvergi af þeim kröfum, vel á annað þúsund manns munu fá vinnu, fasteignaverð styrkist, vinnufúsar hendur geta fengið störf og meðallaun hækka verulega á svæðinu.“ Þetta er meðal þess sem Árni Sigfússon segir í ávarpi sínu á Ljósanótt í lok árgangagöngu. Þúsundir manna tóku þátt í árgangagöngunni niður Hafnargötu í Reykjanesbæ í dag og fögnuðu bjartari tíð.