Bæjarráð bregst við með frestun á greiðslu fasteignagjalda

Mikill efnahagssamdráttur hefur orðið í kjölfar Covid19 veirunnar
Mikill efnahagssamdráttur hefur orðið í kjölfar Covid19 veirunnar

Bæjarráð Reykjanesbæjar samþykkti sl. fimmtudag fyrstu aðgerðir til að bregðast við miklum samdrætti í efnahagslífinu í kjölfar Covid19 veirunnar. Einn liður í þeim aðgerðum er að gefa lögaðilum tækifæri til að sækja um frest á greiðslu fasteignagjalda á atvinnuhúsnæði í apríl og maí. Umsóknir þurfa að berast á netfangið frestunfasteignagjalda@reykjanesbaer.is

Bæjarráð samþykkti einnig að senda gjaldfallin fasteignagjöld á íbúðarhúsnæði ekki í milliinnheimtu. Þess er vænst að þeir sem geta greitt geri það.