Besti árangur á samræmdum prófum

Nemendur standa sig vel á samræmdum prófum.
Nemendur standa sig vel á samræmdum prófum.

Besti árangur á samræmdum prófum í 10. bekk  í Reykjanesbæ, Garði og Sandgerði frá upphafi.

Miklar framfarir hafa orðið í íslensku, stærðfræði og ensku í 10. bekk. Meðaltalsárangur nemenda í þessum bæjarfélögum er nú við landsmeðaltal í stærðfræði og ensku í fyrsta skipti frá upphafi samræmdra prófa. Framfarir hafa einnig orðið í íslensku.

Aðspurður segir Gylfi Jón Gylfason fræðslustjóri Reykjanesbæjar að margir samverkandi þættir skýri hinn góða árangur. Kennarar stýri framförunum og eru greinilega að skila afburða vinnu, þeir hafa einnig komið á góðu samstarfi við foreldra, nemendur eru áhugasamir og metnaðarfullir, góður stuðningur er frá sérfræðiþjónustu skóla og samstarf milli skóla hefur aldrei verið meira en nú. Skýr, samræmd aðferðafræði og stefnumótun skiptir einnig máli.

„Skólasamfélagið hefur sett sér það markmið að nemendur okkar  útskrifist úr grunnskóla með góða grunnfærni sem gefi þeim tækifæri til afla sér góðrar framhaldsmenntunar. Það markmið er nú að nást,“ segir Gylfi Jón.