Biskup Íslands heimsótti bæjarskrifstofur

Frá heimsókn biskups.
Frá heimsókn biskups.

Síðastliðna daga hefur biskup Íslands, frú Agnes Sigurðardóttir vísiterað í Keflavíkursókn.  Meðal stofnana sem biskup heimsótti voru grunn- og leikskólar, Fjölbrautaskóli Suðurnesja og HSS ásamt því að kynna sér æskulýðsstarf safnaðarins.  Á sunnudaginn tók hún þátt í fermingarmessu í Keflavíkurkirkju.

Í dag heimsótti biskup ásamt föruneyti, fulltrúum Keflavíkurkirkju og sóknarnefndar, bæjarskrifstofur Reykjanesbæjar.  Af því tilefni var kynning á verkefninu Energí og trú sem Keflavíkurkirkja stendur fyrir og bauð af því tilefni þingmönnum og þingmannsefnum svæðisins að hlýða á.

Árni Sigfússon bæjarstjóri fékk í fyrsta sinn á ævinni biskupskoss og lýsti sérstakri ánægju með það!