Breytingar á akstursferðum strætó yfir jólahátíðina

Strætóferðir innan Reykjanesbæjar falla niður eftirtalda daga yfir jólahátíðina:

  • Aðfangadag 24. desember.
  • Jóladag 25. desember.
  • Annan í jólum 26.desember.
  • Gamlársdag 30. desember.
  • Nýársdag 1. janúar.

Aðra daga verður akstur strætó innan Reykjanesbæjar með hefðbundnu sniði.

Akstur Strætó á landsbyggðinni verður með þessum hætti:

  • Þorláksmessa - 23. desember, ekið samkvæmt áætlun.
  • Aðfangadagur - 24. desember, einstaka leið er ekin samkvæmt laugardagsáætlun (nánari upplýsingar um hverja leið fyrir sig er að finna í leiðarbók).
  • Jóladagur - 25. desember, enginn akstur.
  • Annar í jólum - 26. desember, ekið samkvæmt sunnudagsáætlun.
  • Gamlársdagur - 31.desember, einstaka leið er ekin samkvæmt laugardagsáætlun (nánari upplýsingar um hverja leið fyrir sig er að finna í leiðarbók).
  • Nýársdagur - 1. janúar, enginn akstur.

Aðra daga verður akstur Strætó til og frá Reykjanesbæ með hefðbundnu sniði. Sjá nánar á www.straeto.is.