Breytingar á úrgangsmeðhöndlun

Íbúafundur vegna breytinga á úrgangsmeðhöndlun.

Á næstu vikum eru fyrirhugaðar breytingar á flokkun úrgangs við heimili þegar sérsöfnun á lífrænum eldhúsúrgangi bætist við núverandi flokkun. Breytingarnar byggja á lögum um meðhöndlun úrgangs en í þeim er kveðið á um að flokka skuli í fjóra flokka við hvert heimili. Flokkarnir eru pappír / pappi, plast, lífrænn eldhúsúrgangur og blandaður úrgangur.

Af því tilefni er boðað til íbúafundar miðvikudaginn 10. maí  kl.18:00 til 19:00 í Bíósal Duus Safnahúsa. Tilgangur fundarins er að kynna fyrir íbúum þær breytingar sem framundan eru og að svara helstu spurningum sem brenna á íbúum. Hægt verður að horfa á fundinn í beinu streymi á Facebook síðu Reykjanesbæjar. Þá verður einnig hægt að nálgast upptöku af honum á sömu síðu. 

Við hvetjum öll til þess að mæta og kynna sér þetta mikilvæga málefni því lykillinn að árangri er samvinna okkar allra. Áhugasömum er einnig bent á að hægt er að kynna sér væntanlegar breytingar hér eða á vefnum www.flokkum.is

Hlökkum til að sjá sem flest!