Dagforeldrar í Reykjanesbæ í liði með leikskólum og grunnskólum

Meðfylgjandi mynd er frá afhendingu diskana, f.v. Inga Lóa Guðmundsdóttir fjölskyldu og félagsmálas…
Meðfylgjandi mynd er frá afhendingu diskana, f.v. Inga Lóa Guðmundsdóttir fjölskyldu og félagsmálasviði, Margrét Stefánsdóttir varaformaður félags dagforeldra, Kittý Guðmundsdóttir formaður félags dagforeldra og Bryndís Guðmundsdóttir talmeinafræðingur og höfundur.

Á dögunum keyptu allir starfandi dagforeldrar í Reykjanesbæ hljóðdiskinn „Leikum og lærum með hljóðin" eftir Bryndísi Guðmundsdóttur, talmeinafræðing.  Góður málþroski byggist  á nokkrum mikilvægum þáttum og  þar á meðal er hljóðkerfisvitund.  Það er því mikilvægt að örva og ýta undir hljóðmyndun þegar börn eru ung og á næmiskeiði máltökunnar.   Hljóðdiskurinn Leikum og lærum með hljóðin er mikið notaður í leik og starfi með börnum í leikskólum bæjarins og það er því ánægjulegt að dagforeldrar leggi sitt af mörkum í framtíðarsýn menntamála með því að bjóða börnum sem hjá þeim dvelja upp á gæða námsefni sem stuðlar að góðum málþroska.