FÍ verður með lýðheilsuátak á Suðurnesjum á nýju ári

Ferðafélag Íslands verður með lýðheilsuátak á Suðurnesjum eftir áramót. Ljósmynd: FÍ
Ferðafélag Íslands verður með lýðheilsuátak á Suðurnesjum eftir áramót. Ljósmynd: FÍ

Ferðafélag Íslands  verður með lýðheilsuátak á Suðurnesjum eftir áramót. Kynningarfundur verður í Keili, miðstöð vísinda, fræða og atvinnulífs á Ásbrú þann 2. janúar kl. 17:30. Kynningafundur verður einnig haldinn í Salthúsinu í Grindavík laugardaginn 4. janúar kl. 16:00.

Á tímabilinu janúar til maí 2020 mun Ferðafélag Íslands halda úti gönguhópi á Suðurnesjum. Hópurinn verður í anda þeirra hópa sem Ferðafélag Íslands heldur þegar úti í því skyni að stuðla að bættri lýðheilsu.

Á kynningarfundunum munu aðstandendur verkefnisins lýsa dagskránni næstu mánuðina. Göngurnar eru flestar léttar og lagt er upp með að njóta fremur en þjóta.

Farið verður á 15 fjöll, langflest á Suðurnesjum en einnig verður gengið á Ok, Snæfellsjökul, Hengil, Móskarðahnúka og á Heimaklett og Eldfell í Vestmannaeyjum hvar gist verður eina nótt.

Safnast verður saman fyrir hverja göngu og sameinast í bíla í Njarðvík. Félagar í Suðurnesjamönnum eiga þess einnig kost að taka þátt í námskeiðum í sjósundi, samkvæmisdönsum og æfingum á reiðhjólum. Fararstjórar verða Reynir Traustason og Hjálmar Árnason. Hámarksfjöldi þátttakenda er 35 manns.

Dagskrá

  • Sunnudagur 12. janúar: Þorbjörn
  • Sunnudagur 26. janúar: Hagafell, Sýlingsfell
  • Miðvikudagur 5. febrúar: Dans í sal FÍ kl. 18
  • Laugardagur 8. febrúar: Geitahlíð, Stóra-Eldborg
  • Miðvikudagur 12. febrúar: Dans í sal FÍ kl. 18
  • Miðvikudagur 19. febrúar: Dans í sal FÍ kl. 18
  • Laugardagur 22. febrúar: Sveifluháls, Hattur og Hetta
  • Miðvikudagur 26. febrúar: Dans í sal FÍ kl. 18
  • Miðvikudagur 4. mars: Sjósund í Nauthólsvík kl. 18.
  • Laugardagur 7. mars: Fiskidalsfjall/Húsafell
  • Miðvikudagur 11. mars: Sjósund í Nauthólsvík kl. 18
  • Laugardagur 14. mars: Stóra-Kóngsfell. Broddaganga
  • Miðvikudagur 18. mars: Sjósund í Nauthólsvík kl. 18
  • Sunnudagur 22. mars: Keilir.
  • Miðvikudagur 25. mars: Sjósund í Nauthólsvík kl. 18
  • Laugardagur 4. apríl: Stóri Hrútur
  • Sunnudagur 26 apríl: Hengill. Kýrdalshryggur. (Sameiginleg ganga)
  • Sunnudagur 3. maí:  Móskarðahnúkar. (Sameiginleg ganga)
  • Laugardagur 9. maí: Snæfellsjökull. (Ekki innifalinn í verði)
  • Laugardagur 6. maí og sunnudagur 7. maí: Vestmannaeyjar. Heimaklettur, Eldfell kl. 07:00. (Gisting ekki innifalin, né ferja)
  • Laugardagur 30. maí: Ok kl. 07:00