Fornbílar aka ekki niður Hafnargötu á Ljósanótt

Frá akstri bifhjóla niður Hafnargötu á Ljósanótt.
Frá akstri bifhjóla niður Hafnargötu á Ljósanótt.

Vegna aukinna öryggiskrafna munu fornbílar ekki aka niður Hafnargötu á aðaldegi Ljósanæturhátíðar, laugardaginn 2. september. Bifhjól frá Bifhjólaklúbbnum Erni munu hins vegar aka niður Hafnargötuna að venju og fornbílar verða til sýnis á Keflavíkurtúni frá 12:30 á laugardeginum. Ökumenn fornbíla geta lagt á Keflavíkurtúni á tímabilinu kl. 10:00 og 12:30 þar sem bílarnir verða svo til sýnis fram eftir degi.

Sjá frekari upplýsingar í fréttatilkynningu frá lögreglustjóranum á Suðurnesjum  hér að neðan.