Fulltrúar Reykjanesbæjar í Útsvari

Fulltrúar Reykjanesbæjar í Útsvari í vetur, Kristján, Helga Sigrún og Grétar Þór. Áfram Reykjanesbæ…
Fulltrúar Reykjanesbæjar í Útsvari í vetur, Kristján, Helga Sigrún og Grétar Þór. Áfram Reykjanesbær.

Fulltrúar Reykjanesbæjar í Útsvari, spurningakeppni sveitarfélaga 2017-2018 hjá RÚV verða Grétar Þór Sigurðsson nemi í listfræði, Helga Sigrún Harðardóttir lögfræðingur og Kristján Jóhannsson leigubílsstjóri og leiðsögumaður. Helga Sigrún og Kristján eru ný í keppninni en Grétar Þór keppir fyrir Reykjanesbæ í þriðja sinn í vetur. 

Miklar breytingar hafa verið gerðar á fyrirkomulagi keppninnar. Útlit í sjónvarpssal er nýtt og stjórnendur eru nýir. Guðrún Dís Emilsdóttir og Sólmundur Hólm tóku við af Þóru Arnórsdóttur og Simari Guðmundssyni. Þá er símavinur ekki á boðstólnum lengur en lið fá álit þjóðar við einni spurningu. 

Lið Reykjanesbæjar mun etja kappi við lið Seltjarnarness föstudaginn 1. desember. Við óskum Grétari Þór, Helgu Sigrúnu og Kristjáni velgengni í keppninni og erum stolt af þessum góðu fulltrúum bæjarins.