Fyrstu aðgerðir Reykjanesbæjar vegna Covid 19 veirunnar

Mynd: OZZO
Mynd: OZZO

Vinna við aðgerðir Reykjanesbæjar vegna Covid 19 í fullum gangi.

Á fundi bæjarráðs Reykjanesbæjar í dag, 8. apríl, voru samþykktar breytingar á fjárfestingaráætlun bæjarfélagsins fyrir árið 2020. Breytingarnar felast í því að mannaflafrek verkefni eru sett í forgang og dregið úr öðrum sem ekki hafa jafn mikil jákvæð áhrif á atvinnumarkað. Jafnframt hefur bæjarstjóra verið falið að gera viðauka við fjárhagsáætlun ársins til þess að auka framkvæmdir um 460 miljónir króna, þannig að heildar áætlunin verði 1.160 milljónir króna.   Þar fyrir utan stendur Reykjanesbær í framkvæmdum við Stapaskóla uppá 2 milljarða króna, hönnun nýs hjúkrunarheimilis fyrir 70 miljónir, Samanlagt mun Reykjanesbær því framkvæma fyrir rúma 3,2 milljarða á árinu.

Þessar breytingar eru liður í viðbrögðum bæjarfélagsins við þeim efnahagslegu áföllum sem nú ganga yfir. Viðbrögðin miðast við að fjölga störfum eins og hægt er, með það að markmiði að draga úr atvinnuleysi og ekki síður að vernda önnur störf í atvinnulífi svæðisins.

Ljóst er að meira þarf til og munu frekari viðbrögð koma fram á næstu vikum. Búist er við að atvinnuleysi í Reykjanesbæ muni verða yfir 24% í apríl. Ljóst er aðkoma ríkisins er nauðsynleg til þess að hægt verði að vernda velferð bæjarbúa á meðan þessi efnahagslegu áföll ganga yfir.

Í samhljóma bókun bæjarstjórnar frá fjarfundi hennar í gær segir: „Bæjarstjórn Reykjanesbæjar fagnar þeim almennu aðgerðum sem nú þegar hefur verið ráðist í en krefst þess að sérstaklega sé tekið tillit til þeirra svæða á Íslandi sem verst verða úti. Bæjarstjórn mun gera allt sem í hennar valdi stendur til þess að standa vörð um velferð íbúa í gegnum þá erfiðleika sem við stöndum frammi fyrir sem samfélag.“

Þó staðan sé svört og ljóst að erfiðir tímar eru framundan, má það ekki gleymast að ástæðan fyrir því að svæðið verður þetta illa úti núna er sú að flugvöllurinn tengir okkur með beinum hætti við alþjóðlegt efnahagslíf. Það þýðir jafnframt að tækifærin til framtíðar eru mjög mikil og það er ekkert sem bendir til þess að þessi samdráttur verði varanlegur.

Covid mun ekki breyta legu landsins, mitt á milli tveggja heimsálfa. Keflavíkurflugvöllur verður áfram tengipunktur í flugi á leið yfir Atlantshafið, með mikla möguleika til frekari þróunar, þar á meðal með beinu flugi til Asíu. 

Nærsvæði flugvallarins mun því eftir sem áður eiga sömu tækifæri til framtíðar.

 

Kjartan Már Kjartansson
bæjarstjóri

 

Yfirlit yfir aðgerðir Reykjanesbæjar vegna Covid -19:

 

Í mars:

  1. Leikskólagjöld lækka í hlutfalli við notkun; 0% - 50% - 100%
  2. Bæjarsjóður bætir 4 þjónustureknum leikskólunum upp mismuninn á fullu framlagi foreldra og því sem greitt er skv. lið 1.
  3. Bæjarsjóður greiðir fullt framlag, kr. 50 þúsund pr. barn, með umsömdum fjölda barna til dagforeldra, óháð mætingu.
  4. Gjald í frístund lækkar í hlutfalli við notkun.
  5. Starfsmenn Reykjanesbæjar halda óbreyttum launum í sóttkví.
  6. Nemendum í grunnskólum tryggður ókeypis skólamatur.
  7. Ógreidd fasteignagjöld einstaklinga í febrúar og mars af íbúðarhúsnæði verða ekki send í milliinnheimtu að svo stöddu en þess vænst að þeir greiði áfram sem geta.
  8. Ógreidd fasteignagjöld af atvinnuhúsnæði í C-flokki í febrúar og mars verða ekki send í milliinnheimtu og lögaðilar geta í þessum fyrstu aðgerðum sótt um frest á greiðslu fasteignagjalda í apríl og maí á netfangið frestunfasteignagjalda@reykjanesbaer.is. Eins er þess vænst að þau fyrirtæki sem geta greitt geri það. Að annars óbreyttum lögum er sveitarfélögum óheimilt að fella niður fasteignagjöld.
  9. Framkvæmdaáætlun ársins gerir ráð fyrir að ráðist verði í verklegar framkvæmdir fyrir 750 milljónir á árinu til viðbótar við byggingu Stapaskóla. Í skoðun er að fara í frekari framkvæmdir.
  10. Undirbúningur að fjölgun starfa til skemmri og lengri tíma er hafinn.
  11. Sérstaklega fylgst með þróun atvinnuleysis og staðan endurmetin í maí nk.

 

Í apríl:

  1. Greiðsluþátttaka eldri borgara og öryrkja í heimsendingu matar felld niður á meðan á samkomubanni stendur og mötuneyti á Nesvöllum er lokað.
  2. Bæjarráð samþykkir að breyta fjárfestingaráætlun Reykjanesbæjar 2020 með það að markmiði að fjölga störfum.
  3. Bæjarráð samþykkir að ráðist verði í auknar framkvæmdir og önnur úrræði að upphæð kr. 462.000.000 til viðbótar við þær 700 milljónir sem þegar höfðu verið áætlaðar í framkvæmdir á árinu 2020.