Gera hreint fyrir sínum dyrum

Tjarnarselsbörn við tiltekt.
Tjarnarselsbörn við tiltekt.

Í tilefni af Grænum apríl og Degi umhverfisins  ætla  Tjarnarselsbörnin ekki að láta sitt eftir liggja og munu þann  25. apríl taka til hendinni  á Tjarnargötutorginu og í skrúðgarðinum. 

Börnin vilja endilega fá fleiri í lið með sér og bjóða bæjarbúum að leggja sitt af mörkum og mæta á fyrrnefnda staði kl. 10.00, þann dag.

Leikskólabörnin og leikskólakennarar þeirra hvetja alla bæjarbúa  til að ,,gera hreint fyrir sínum dyrum“ .