Guðrún Ósvífursdóttir komin á Facebook

Frá fornleifauppgreftri í Höfnum.
Frá fornleifauppgreftri í Höfnum.

Nemendur í 9. bekk í Njarðvíkurskóla í Reykjanesbæ fengu óvenjulega vinarbeiðni um daginn þegar Guðrún Ósvífursdóttir óskaði eftir því að fá að vera vinur þeirra á Facebook.  Allir nemendurnir samþykktu vinarbeiðnina þar sem þeim fannst Guðrún  áhugaverð, hæfilega  frökk og margbrotin  manneskja.  Guðrún  er að sögn afar opinská um líf sitt og  segir vinum sínum frá leyndarmálum í lífi sínu, hvernig persóna hún er, hvaða álit hún hefur á fjölskyldu sinni, ættmennum og nágrönnum,  hvernig hún býr og hvað hún gerir. 

Ásgerður Þorgeirsdóttur skólastjóri segir um skemmtilega nýjung í kennsluháttum að ræða sem  ætlað er  að auka áhuga nemenda á Laxdælu sem þeir eru að fara að lesa. Ásgerður  segist stuðning Guðrúnar  ómetanlegan og býst við að Guðrúnu takist að vekja meiri áhuga nemenda á bókinni sem vonandi drukknar ekki í jólabókaflóðinu. 

Á Íslandi  eru allir  á Facebook og eru fornir kvenskörungar þar engin undantekning. 

Meðfylgjandi mynd var tekin við fornleifauppgröft í Höfnum  þar sem meðal annars var tekið á móti börnum úr Njarðvíkurskóla.  Engum dettur þó í hug að þarna hafi verið heimili Guðrúnar Ósvífursdóttur.