Heilsu- og forvarnarvika í Reykjanesbæ

Frá heilsu- og forvarnarviku
Frá heilsu- og forvarnarviku

Heilsu- og forvarnarvika verður haldin í Reykjanesbæ í þriðja sinn dagana 27. september til 3. október n.k.

Allar stofnanir Reykjanesbæjar sem og fyrirtæki og stofnanir í bæjarfélaginu taka þátt og bjóða upp á heilsutengda dagskrá en markmið  heilsu- og forvarnarvikunnar er að draga úr þeim áhættuþáttum sem einstaklingurinn getur staðið frammi fyrir á lífsleiðinni og hlúa að verndandi þáttum með þátttöku allra bæjarbúa.