Íbúar í Starmóa taka upp nágrannavörslu

 

Nágrannavörslu hefur verið komið á í Starmóa í Reykjanesbæ. Íbúarnir hafa bundist samtökum um að gæta að eignum hvers annars og fylgjast með hýbílum þegar nágrannar eru að heiman.

Nágrannavarsla er nú á Þórsvöllum, Birkiteig, Sjafnarvöllum, Fífudal, Mávatjörn, Lágseylu, Kjarrmóa og Lyngmóa.  Starmói er því níunda nágrannavörslugatan í sveitarfélaginu.

Reykjanesbær tók formlega upp Nágrannavörslu árið 2008 en verkefnið er samstarfsverkefni umhverfissviðs Reykjanesbæjar og forvarnardeildar lögreglunnar á Suðurnesjum.

Starfsmenn umhverfissviðs afhentu íbúum Starmóa upplýsingamöppu um nágrannavörslu og límmiða til að setja í rúður og á hurðir.  Merki verkefnisins var komið fyrir á staur við Lyngmóa.

Íbúar og nágrannar í Reykjanesbæ sem vilja taka upp formlega nágrannavörslu eru hvattir til að hafa samband við Jónu Hrefnu Bergsteinsdóttur starfsmann umhverfis- og skipulagssviðs í síma 421 6700 eða á usk@reykjanesbaer.is.  Nauðsynlegt er að fá upplýsingar um ferli og kynningu áður en gata er útnefnd með „Nágrannavörslu".