Íslensku menntaverðlaunin til kennara í Reykjanesbæ

"Þetta er eins og að fá eitt risastórt klapp á bakið," segir Karólína Einarsdóttir, myndmenntakennari við Akurskóla í Reykjanesbæ. Hún fékk Íslensku menntaverðlaunin 2011 í flokki ungra kennara sem í upphafi kennsluferils hafa sýnt hæfileika og lagt alúð við starf sitt. Forseti Íslands afhenti verðlaunin á miðvikudag.

 

Við erum mjög stolt af Karólínu. Í þakkarávarpi sínu lagði hún áherslu á að þakka samstarfsfólki sínu sem ætti sinn stóra skerf í þessari viðurkenningu. Það segir okkur að hér er öflugur hópur skólamanna á ferð og nemendur og kennarar Akurskóla, líkt og í öðrum skólum í Reykjanesbæ, geta horft með bjartsýni fram á veginn" segir Árni Sigfússon bæjarstjóri.

Karólína útskrifaðist frá Kennaraháskólanum vorið 2007 og hóf myndmenntakennslu um haustið við Akurskóla.

Í umsögn dómnefndar Íslensku menntaverðlaunanna segir að Karólína sé hugmyndaríkur frumkvöðull í kennslu. Hún hafi verið í forsvari fyrir þróunarverkefni á sviði útikennslu og tengist það áhuga Karólínu á að samþætta myndlist og útikennslu við aðrar námsgreinar. »Með störfum sínum og framgöngu hefur Karólína Einarsdóttir sýnt að hún er verðugur fulltrúi ungra kennara sem leggja mikla alúð, fagmennsku og metnað í störf sín nemendum, samstarfsmönnum og nærsamfélagi sínu til heilla,segir í umsögninni.

Leiðarljós Karólínu í kennslunni er að nemandanum líði vel og að hann sjái námstækifæri í öllu. »Það er afskaplega ánægjulegt þegar nemendur finna sig í myndlist, finna að hún gæti hentað þeim og sjá nýjan heim opnast.

Kennslustarfið hefur heillað Karólínu upp úr skónum. "Það er miklu skemmtilegra en ég bjóst við að kenna" segir Karólína í viðtali við MBL. "Starfið er rosalega gefandi og það gerir svo mikið fyrir mann sjálfan að vinna með börnum."