Kálfar, lömb og kiðlingar í litlum húsdýragarði við Víkingaheima

Börnin kunna að meta afkvæmi landnámsdýranna.
Börnin kunna að meta afkvæmi landnámsdýranna.

„Það er mikilvægt að gefa börnum færi á návist við dýrin, sérlega ungviðið. Þetta er einn að þeim þáttum sem mun framvegis gera lífið litríkara hér í Reykjanesbæ" segir Árni Sigfússon bæjarstjóri í tilefni af því að litlum húsdýragarði hefur verið komið upp í Víkingaheimum í innri Njarðvík.  Kálfar, lömb, kiðlingar, landnámshænur, geitur og kanínur eru komnar í garðinn.

Garðurinn opnaði í dag, laugardag og verður opinn framvegis frá sumarbyrjun og fram á haust.

Börnin kunnu strax vel að meta ungviði landnámsdýranna eins og sjá má á meðfylgjandi myndum sem teknar voru á barnahátíð í Reykjanesbæ.