Kiðlingurinn Ása fæddist á Barnahátíð

Kiðlingurinn Ása
Kiðlingurinn Ása

Fyrsti kiðlingurinn sem hefur fæðst í Landnámsdýragarðinum á síðustu tveimur árum fæddist í gær, sunnudag, á Barnahátíðnni sem haldin var í sjöunda sinn um nýliðna helgi.  Kiðlingurinn hefur fengið nafnið Ása.  Fjöldi fólks heimsótti Ásu í gær en ætla má að um 2 þúsund manns hafi komið í Landnámsdýragarðinn og Víkingaheima á Barnahátíðinni.