Kona-Forntónlistarhátíð í Hljómahöll

Tónlistarskóli Reykjanesbæjar er í spennandi samstarfsverkefni með hópi kvenna í tónlist sem kallar sig ReykjavíkBarokk.

Samstarfsverkefnið er tónlistarhátíð sem hefur fengið heitið „Kona-Forntónlistarhátíð“ og fer fram í Bergi og Stapa í Hljómahöll n.k. laugardag og sunnudag. Aðgangur að viðburðum hátíðarinnar er ókeypis og allir eru hjartanlega velkomnir.

Hátíðinni er annars vegar ætlað að vekja athygli á konum fyrri alda í Evrópu sem stunduðu hljóðfæraleik og tónsmíðar en fengu litla sem enga athygli fyrir verk sín. Í þeim þætti hátíðarinnar leika nokkrir hljóðfæranemendur skólans með ReykjavíkBarokk á tónleikum í Bergi.

Hins vegar er hátíðinni ætlað að draga fram í dagsljósið kveðskap íslenskra kvenna og annarra fyrr á öldum, sem tengdist sjósókn. Í því sambandi verður fluttur kveðskapur eftir Látra-Björgu og Hallgrím Pétursson. Þessi hluti hátíðarinnar nefnist „Sjókonur og snillingar“ sem er glænýtt tónleikhús þar sem nemendur úr Kjarna 1 taka þátt.

 

Dagskrá Konu-Forntónlistarhátíðarinnar:

 

Laugardagur 6. nóvember   |  Kl. 13:00 Berg: Tónleikar

  • Ólöf Sigursveinsdóttir, sellókennari við TR og sellóleikari í ReykjavíkBarokk, leikur Sellósvítu nr. 3 í C dúr eftir Johann Sebastian Bach.

Tónleikarnir verða um 20 mín. langir og það verður áhugavert að heyra Ólöfu leika þessa stórkostlegu tónlist Bachs. Gengið inn í gegn um Tónlistarskólann.

Sunnudagur 7. nóvember  |  Kl. 14:00 Berg: Tónleikar

  • ReykjavíkBarokk ásamt hljóðfæranemendum úr Tónlistarskólanum flytja tónlist eftir Maddalenu Sirmen og Elizabeth J. de la Guerre.

Tónleikarnir verða um klukkustundar langir með fróðlegum og skemmtilegum kynningum inn á milli. Fyrir utan það að nemendur okkar leika með þessum frábæru atvinnutónlistarmönnum, þá er tvennt annað mjög áhugavert; að semballinn okkar verður í töluverðu hlutverki og svo það einstaka tækifæri að fá að heyra tónlist þessara tónskálda, sem hefur verið svo sjaldan leikin í gegn um tíðina.

Gengið inn í gegn um Tónlistarskólann.

Sunnudagur 7. nóvember  |  Kl. 16:00 Stapi: Sjókonur og snillingar – Tónleikhús

  • ReykjavíkBarokk, Leikfélagið Fljúgandi fiskar o.fl. listamenn, ásamt nemendum úr Kjarna 1, sem hafa mikilvægt hlutverk í sýningunni.
  • Kveðskapur Látra-Bjargar og Hallgríms Péturssonar túlkaður á leikrænan hátt með viðeigandi tónlist og hljóðheimi harðrar náttúru.

Gengið inn um inngang Stapa.
Aðgangur ókeypis og allir velkomnir.