Lagnaskipti og endurnýjun Smáratúns framundan

Litalínur sýna lokanir eftir tímabilum
Litalínur sýna lokanir eftir tímabilum

Reykjanesbær og HS Veitur munu fara í allsherjar lagnaskipti og endurnýjun Smáratúns á tímabilinu 23. apríl til 27. ágúst nk. Gatan verður meira og minna lokuð fyrir umferð á þessu tímabili , sjá merkingar á mynd. Opið verður við Hátún til þess að bílar geti lagt þar og einnig er bent á bílastæði við kirkjugarð.

Útskipti á fráveitulögnum nær 1 meter inn fyrir lóðamörk þannig að ef húseigandi telur þörf á endurnýjun sinnar heimtaugar að húsi þá getur hann verið í sambandi við Guðlaug H. Sigurjónsson sviðsstjóra umhverfissviðs en kostnaður við endurnýjun innan lóðar fellur á húseiganda.

Framkvæmdir verða sem hér segir:

Gulur (frá Smáratúni 8 að Aðalgötu): Lokað 23.04 – 15.06
Rauður (frá Aðalgötu að Smáratúni 36): Lokað 27.05.- 15.07
Grænn (frá Smáratúni 38 að Vesturgötu): Lokað 01.07 – 27.08
 

Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem kunna að verða en vonast er eftir góðum samskiptum við íbúa á meðan þetta nauðsynlega verk er í framkvæmd.