Leikskólastjórar Reykjavíkurborgar kynna sér leikskólastarf í Reykjanesbæ

Leikskólastjórar.
Leikskólastjórar.

Rúmlega fimmtíu leikskólastjórar úr Reykjavík ásamt starfsfólki skóla og frístundasviðs voru á ferðinni í Reykjanesbæ í síðustu viku til að kynna sér starf leikskólanna í bænum.  Skoðaðir voru sjö leikskólar og einnig kynntu leikskólastjórarnir sér starf Keilis og Eldeyjar á Ásbrú.  Í lok dagsins var síðan móttaka í Víkingaheimum þar sem leikskólafulltrúi og fræðslustjóri ávörpuðu hópinn. 

Að sögn Ingibjargar Bryndísar leikskólafulltrúa voru Reykvíkingarnir ánægðir með heimsóknina og báru lof á faglegt starf leikskólanna og móttökur kollega sinna hér.