Leikskólinn Hjallatún hlaut styrk

Frá styrkveitingunni.
Frá styrkveitingunni.

Sunnudaginn 4. maí tók Leikskólinn Hjallatún á móti styrk frá  Barnavinafélaginu Sumargjöf . Verkefnið sem hlaut styrkinn nefnist  ,,Í Hringekju eru allir snjallir“ sem er þróunarverkefni  sem leikskólinn hefur unnið að sl. þrjú ár. Markmið verkefnisins er m.a. að gefa út handbók og efla skráningarkerfi Hringekjunnar.  Styrkur þessi er mikil hvatning og viðurkenning á starfinu sem fram fer í leikskólanum og gerir það að verkum að kennarar Hjallatúns geta haldið áfram að vinna að markmiðum verkefnisins.