Lengri kvöldopnun í Sundmiðstöð

Sund er alltaf endurnærandi og hressandi.
Sund er alltaf endurnærandi og hressandi.

Opnunartími Sundmiðstöðvar verður lengdur frá og með 1. júní. Nú verður hægt að njóta  endurnæringar sundsins og vatnsins lengra fram eftir kvöldi björtustu mánuði ársins.

1. júní til 31. ágúst verður opnunartími sundmiðstöðvar sem hér segir:

Mánudaga til fimmtudaga kl. 6:30 - 21:30
Föstudaga kl. 6:30 - 20:30
Laugardaga og sunnudaga kl. 9:00 - 18:00

Sundlaugargestir hafa 10 mínútur eftir lokun til að yfirgefa sundmiðstöðina.

Frá 6. júní til 21. ágúst verður sundlaugin í Njarðvík lokuð, en opið í heita potta, gufu og æfingastöð Massa sem hér segir:

Mánudaga til föstudaga kl. 10:00 – 20:00