Málþing um stöðu innflytjenda var haldið í Stapa

Frá málþinginu í Stapa.
Frá málþinginu í Stapa.

Málþing um stöðu innflytjenda var haldið í Stapa föstudaginn 14. nóvember sl. Málþing þetta var haldið af Sambandi íslenskra sveitarfélaga og var ætlað sveitarstjórnarmönnum og öðrum stjórnendum í sveitarfélögum, svo og starfsmönnum sem hafa umsjón með málefnum innflytjenda.

Í boði voru fjölbreytt erindi um málefni og stöðu innflytjenda á Íslandi. Tvö mjög áhugaverð erindi voru í höndum tveggja bæjarbúa Reykjanesbæjar, þeirra Heru Ó  Einarsdóttur og Angelu Marina Barbedo Amaro. Erindi Heru fjallaði um það hvernig við getum nýtt okkur reynslu norðurlandaþjóða í málefnum innflytjenda og fjallaði erindi Angelu um sjónarhorn innflytjandans og hvernig það sé að vera íbúi í Reykjanesbæ.