Nemendur áhugasamir um raungreinar

Áhugasamir nemendur.
Áhugasamir nemendur.

Samkvæmt niðurstöðum úr Skólavoginni, mælitæki sem notað er til að afla og meta ýmsar upplýsingar um skólastarf, hafa nemendur í Reykjanesbæ meiri áhuga á stærðfræði og náttúrufræði en gengur og gerist annars staðar á landinu.

Gylfi Jón Gylfason fræðslustjóri Reykjanesbæjar segir þessar niðurstöður afar ánægjulegar og telur að mikinn áhuga nemenda á raungreinum megi rekja til þess að miklar framfarir hafa orðið í stærðfræði í bæjarfélaginu undanfarin ár. Almennt hafi nemendur áhuga á því sem þeir eru góðir í og sinni því vel.  Því sé eðlilegt að nemendur hafi mikinn áhuga á raungreinum.