Nemendur heiðraðir í Víkingaheimum

Nemendur í víkingaskipinu Íslendingi.
Nemendur í víkingaskipinu Íslendingi.

Yfir 90 nemendur úr Reykjanesbæ eru á meðal þeirra 10% nemenda á öllu landinu sem hlutu hæstu einkunnir á samræmdum prófum á haustönn 2012.  Þetta gerist um leið og grunnskólanemar Reykjanesbæjar náðu almennt mjög stórstígum framförum á samræmdum prófum í haust.
Árni Sigfússon, bæjarstjóri, veitti hópnum viðurkenningarskjöl í tilefni þessa frábæra námsárangurs í Víkingaheimum í gær að viðstöddum foreldrum, öfum og ömmum og forsvarsmönnum grunnskólanna. Það voru nemendur í 4., 7. og 10. bekk grunnskólanna í Reykjanesbæ sem þreyttu samræmd próf sl. haust, alls 614 nemendur. Prófin eru framkvæmd með sama hætti um allt land og fara fram í íslensku, stærðfræði og ensku.

Í ávarpi Árna  bæjarstjóra lagði hann áherslu á mikilvægi þess að viðurkenna hinn frábæra árangur sem þessir nemendur væru að sýna og væru þannig umhverfi sínu og samfélaginu til sóma og mikil hvatning fyrir aðra nemendur. Í þessum hópi væru jafnan sterkir forystumenn til framtíðar jafnt á sviði lista, íþrótta, vísinda og félagslegrar þátttöku.
Árni gat þess einnig að aðgerðir til að mæla árangur í skólastarfi væru langt frá því bundnar við mælingar á samræmdum prófum í íslensku, stærðfræði eða ensku. Margir nemendur hefðu t.d. sýnt frábæran árangur á tónlistarsviðinu, og mikið af ungu tónlistarfólki væri nú að láta að sér kveða í þjóðlífinu eftir að grunnur var lagður í Tónlistarskóla Reykjanesbæjar. “Við eigum tónlistarmenn í fjölmörgum tónsveitum sem eru að gera garðinn frægan um þessar mundir”,sagði Árni. Þá nefndi hann að það væru hvorki meira né minna en  240 Íslandsmeistarar á þessu ári á íþróttasviðinu frá Reykjanesbæ. Ekki síst væru miklir afreksmenn í grunnskólum Reykjanesbæjar sem m.a. kæmi fram í frábærum árangri í Hreystikeppni grunnskóla, þar sem grunnskólar úr Reykjanesbæ væru í fremstu röð. Þá mætti minna á að margir nemendur væru frábærir verkmenn og þannig mætti áfram telja. Með samræmdu prófunum er þó skýr mæling sem væri með sama hætti um allt land og því hentugur mælikvarði.