- Þjónusta
- Velferð og stuðningur
- Menntun og fræðsla
- Skipulags-, bygginga- og umhverfismál
- Íþróttir og tómstundir
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- Mitt Reykjanes
Börnum og ungmennum gefst kostur á að koma hugmyndum sínum varðandi dagskrá á Ljósanótt 2023 á framfæri.
Á Ljósanótt er meðal annars boðið upp á fjölbreytta skemmtidagskrá fyrir börn og ungmenni. Því hefur verið settur upp hugmyndakassi í Bókasafni Reykjanesbæjar þar sem börn og ungmenni geta sett hugmyndir sínar á blað og komið þeim til verkefnastjórnar Ljósanætur sem mun kappkosta að koma hugmyndum þeirra í framkvæmd.
Ljósanótt verður haldin 31. ágúst - 3. september næst komandi.
Við hvetjum öll til að fara með börn sín í Bókasafnið og taka þátt í hugmyndasöfnuninni sem stendur yfir til 8. ágúst.