Reykjanesbær í sundkeppni sveitarfélaga í hreyfiviku

Reykjanesbær eru heilsueflandi samfélag. Þetta er lógó verkefnisins.
Reykjanesbær eru heilsueflandi samfélag. Þetta er lógó verkefnisins.

Reykjanesbær hefur skráð sig til leiks í sundkeppni milli sveitarfélaga í Hreyfiviku UMFÍ sem fram fer 29. maí til 4. júní nk. Sundlaugargestir eru hvattir til að skrá sig daglega í afgreiðslu sundmiðstöðva Reykjanesbæjar og hversu marga metra þeir syntu. Tveir heppnir þátttakendur í sundkeppninni verða dregnir úr pottinum og fá árskort í Sundmiðstöðina. Frítt verður í sund fyrir alla föstudaginn 2. júní í tilefni hreyfiviku. 

Hreyfivika UMFÍ er árleg lýðheilsuherferð og hefur það að markmiði að kynna kosti þess að taka þátt í hreyfingu og íþróttum.  Stofnanir, fyrirtæki, félagasamtök og íþrótta-og tómstundafélög í Reykjanesbæ eru hvött til þátttöku í Hreyfivikunni.  Hægt er að senda tilkynningu um þátttöku á hreyfivika@gmail.com fyrir 15. maí nk. Nánari upplýsingar um Hreyfivikuna er hægt að nálgast á http://www.umfi.is/hreyfivika-umfi

Umsjón með verkefninu í Reykjanesbæ hefur stýrihópur Heilsueflandi samfélags í samstarfi við íþróttafélögin Keflavík og Njarðvík.