Reykjanesbær keppir á móti Reykjavík í Útsvari á morgun

Reykjanesbær og Reykjavík í Útsvari
Reykjanesbær og Reykjavík í Útsvari

Lið Reykjanesbæjar etur kappi við lið Reykjavíkurborgar í spurningaþættinum Útsvari sem sýndur verður í beinni útsendingu í sjónvarpinu á morgun.
Þetta er þriðja viðureign Reykjanesbæjar í keppninni í ár en liði bæjarins skipa Baldur Guðmundsson, Hulda G. Geirsdóttir og Theodór Kjartansson.

Það eru sveitarfélögin Reykjanesbær, Reykjavík, Fljótsdalshérað og Garðabær sem keppa um sæti í úrslitum.

Ekki missa af Útsvari næstkomandi föstudagskvöld kl.20:05 eða strax á eftir Kastljósi.

Áfram Reykjanesbær!