Reykjanesbær kominn í úrslit í skólahreysti

Ánægðir skólahreystiskeppendur.
Ánægðir skólahreystiskeppendur.

Nemendur í grunnskólum Reykjanesbæjar stóðu sig að venju vel í undankeppni skólahreysti og röðuðu sér í efstu sætin í sínum riðli. Heiðarskóli varð efstur í riðlinum og komst því beint í úrslit. Holtaskóli varð í öðru sæti og komst því einnig áfram því reglur keppninnar segja fyrir um að tvö efstu silfurliðin úr riðlakeppninni fari einnig áfram en Holtaskóli var langefsta silfurliðið.

Í  ár líkt og í fyrra verður Reykjanesbær því með tvo skóla í úrslitakeppni skólahreysti. Að sögn  Gylfa Jóns Gylfasonar  fræðslustjóra næst svona árangur einungis með þrotlausri vinnu og miklum metnaði í skólunum þar sem kennarar og nemendur leggjast á eitt um að ná árangri. 

Myndina tók Einar Hannesson.