Safnahelgi á Suðurnesjum.

Duushús, Listasafn Reykjanesbæjar

Ljósmyndasýningin Spegilsýnir: Keflvíkingurinn Einar Falur Ingólfsson ljósmyndari veitir leiðsögn um ljósmyndasýninguna Spegilsýnir í Listasal Duushúsa, laugardag kl.14:00.  Listamennirnir Bára Kristinsdóttir, Einar Falur Ingólfsson, Jónatan Grétarsson, Katrín Elvarsdóttir, Spessi og Þórdís Erla Ágústsdóttir eiga verk á sýningunni og sýningarstjóri er Aðalsteinn Ingólfsson.

Leiðsögn um Völlinn, nágranni innan girðingar laugardag kl.15:00.  Leiðsögn um Völlinn, nágranni innan girðingar laugardag kl.15:00.

Leiðsögn um Bátasafn Gríms Karlssonar sunnudag kl.14:00.  Sjómannavalsar í Bíósal sunnudag kl.15:00. Félag harmonikkuunnenda leikur fyrir dansi.

Víkingaheimar: Dr. Bjarni F. Einarsson fornleifafræðingur kynnir fornleifarannsókn sem fram fór í Höfnum sl. vor,laugardag kl.11:00. Jafnframt verða fornleifar frá rannsókninni til sýnis.