Samningur um Heilsueflandi samfélag undirritaður

Frá undirritun samnings, f.v. Kjartan Már Kjartansson bæjarstjóri Reykjanesbæjar og Birgir Jakobsso…
Frá undirritun samnings, f.v. Kjartan Már Kjartansson bæjarstjóri Reykjanesbæjar og Birgir Jakobsson landlæknir

Í gær undirrituðu Kjartan Már Kjartansson bæjarstjóri og Birgir Jakobsson landlæknir samning þess efnis að Reykjanesbæ verði aðili að verkefni embættis Landlæknis, Heilsueflandi samfélag. Í framhaldi verður myndaður stýrihópur ýmissa hagsmunaaðila sem mun veita verkefninu brautargengi.

Reykjanesbær varð formlega aðili að Heilsueflandi samfélagi í upphafi Heilsu- og forvarnarviku. Það sýnir að mikill áhugi er á að verkefnið fái góða byrjun þar sem allir hagsmunaaðilar komi að. Eitt af því fyrsta sem unnið verður að er myndun stýrihóps og var fulltrúum þessara aðila boðið á kynningu á Heilsueflandi samfélagi og undirritunina í gær.

Í gær var einnig greint frá nýjum niðurstöðum Rannsóknar og greiningar á högum og líðan ungs fólks. Nánar verður skýrt frá þeim niðurstöðum síðar, en það var ánægjulegt að sjá að könnunin, sem gerð hefur verið reglulega til margra ára, sýnir að kjör og líðan ungs fólks í Reykjanesbæ hefur batnað mikið á undanförnum árum. Slíkar niðurstöður eru ekki síður góð byrjun á verkefni sem Heilsueflandi samfélagi.

Hvað er heilsuefling:

  • Í heilsueflingarstarfi er markvisst unnið með áhrifaþætti heilbrigðis.
  • Heilsuefling er ferli sem gerir fólki kleyft að hafa aukin áhrif á heilsu sína og bæta hana
  • Holla valið þarf að vera eins auðvelt og mögulegt er þar sem fólk býr, starfar og leikur sér (óháð aldri, kyni eða félagslegri stöðu).

Ýmsir hagsmunaaðilar munu koma að verkefninu

Fulltrúar hagsmunaaðila við undirritun samningsins.