Samráðsfundur með ungmennaráði

Samráðsfundur umhverfissviðs með fulltrúum ungmennaráðs Reykjanesbæjar. Fundurinn var haldinn á 2. …
Samráðsfundur umhverfissviðs með fulltrúum ungmennaráðs Reykjanesbæjar. Fundurinn var haldinn á 2. hæð í 88 húsinu.

Þann 22. nóvember sl. hélt starfsfólk umhverfissviðs samráðsfund með ungmennaráði Reykjanesbæjar. Fundurinn var liður í að efla þátttöku barna í stefnumótun og ákvörðunum sveitarfélagsins. Á fundinum hélt starfsfólk umhverfissviðs kynningu á sinni starfsemi og formaður og varaformaður ungmennaráðs kynningu á starfsemi ráðsins. Í framhaldinu áttu sér stað líflegar umræður um hina ýmsu málaflokka umhverfissviðs þar sem ungmennaráðsmeðlimir fóru á milli borða og ræddu við starfsfólk sviðsins.