Samstarfsfundur með bæjarstjórum norrænu vinabæjanna

Þjóðfánar vinabæjanna fjögurra, Íslands, Svíþjóðar, Noregs og Finnlands, ásamt fána Reykjanes Geopa…
Þjóðfánar vinabæjanna fjögurra, Íslands, Svíþjóðar, Noregs og Finnlands, ásamt fána Reykjanes Geopark og Bókasafns Reykjanesbæjar við Ráðhús Reykjanesbæjar.

Bæjarstjórar Trollhättan í Svíþjóð, Kristiansand í Noregi og Kerava í Finnlandi eru nú í vinnuheimsókn í Reykjanesbæ þar sem samstarf vinabæjanna er rætt. Samstarfsverkefnin  eru þrjú, rafræn stjórnsýsla, móttaka nýrra íbúa af erlendu bergi og brottfall nemenda úr framhaldsskólum.

Auk þess að ræða málin verður bæjarfélagið kynnt bæjarstjórunum, ýmis starfsemi og uppbygging innan þess. Einnig hefst undirbúningur vinabæjarfundar þjóðanna í Reykjanesbæ næsta vor, þar sem haldið verður áfram að vinna að sameiginlegum verkefnum.

Á góðri skandinavísku er þetta kallað nordisk samarbejde.