Samvinna í menningarmálum

Samvinnan tryggð með eins lopapeysum.
Samvinnan tryggð með eins lopapeysum.

Síðastliðinn laugardag stóðu Menningarfulltrúar á Suðurnesjum ásamt verkefnastjóra Menningarráðs Suðurnesja fyrir Málþingi um menningu í Bíósal Duushúsa.  Yfirskrift Málþingsins var Staðarímynd/Staðarvitund.

Á Málþinginu töluðu bæði heimamenn og aðilar utan svæðisins.  Þeir Einar Falur Ingólfsson, Kjartan Ragnarsson og Jónatan Garðarsson bentu á fjölmörg ný tækifæri í menningu - og menningartengdri ferðaþjónustu á Suðurnesjum, sem gætu gert Suðurnesin enn áhugaverðari valkost fyrir ferðamenn, til að sækja okkur heim.

Eftir hádegi voru stutt erindi frá tíu listamönnum og forkólfum sem starfa að menningu á Suðurnesjum.  Ljóst er af erindum heimamanna að mikill kraftur og sköpunargleði ríkir í menningarlífinu á Suðurnesjum og fram kom mikill áhugi listafólksins að láta að sér kveðja.

Á meðfylgjandi mynd má sjá menningarfulltrúa sveitarfélaganna á Suðurnesjum í lopapeysum hönnuðum og prjónuðum af Helgu Ingólfsdóttur Mynstrin sem Helga hannaði á peysurnar eru merki sveitarfélaganna á Suðurnesjum, talið fyrst frá vinstri, Sandgerði, Vogar, Grindavík, Reykjanesbær og Garður.