Skólastjórar í Reykjanesbæ sjóðandi heitir!

Mynd frá skólaskemmtun.
Mynd frá skólaskemmtun.

Foreldrar nemenda í Reykjanesbæ eru afar ánægðir með skólastjórana sína. Þessar upplýsingar koma fram í Skólavoginni þar sem safnað er saman upplýsingum um starf grunnskóla á Íslandi. Í Skólavoginni kemur fram að skólastjórar í Reykjanesbæ voru  í 4. Sæti af þeim 27 sveitarfélögum sem tóku þátt í foreldrahluta könnunarinnar hvað varðar ánægju með störf þeirra. Gylfi Jón Gylfason fræðslustjóri er að vonum ánægður með sitt fólk og segir að vel hafi tekist til með val á skólastjórum. Skólafólkið okkar hefur það að markmiði að laða fram það besta í hverjum og einum og búa nemendur undir fullorðinsárin. Mat foreldrahópsins á störfum skólastjóranna bendir eindregið  til að það sé þeim að takast.