Starfar þú hjá fjölskylduvænu fyrirtæki?

Í fjölskyldustefnu Reykjanesbæjar er kveðið á um að árlega skuli veittar viðurkenningar til  fjölskylduvænna fyrirtækja í Reykjanesbæ.  Með því vill Reykjanesbær hvetja stjórnendur fyrirtækja  til að  setja sér fjölskyldustefnu.   Í ár verða slíkar viðurkenningar veittar í níunda sinn en þegar hafa fjölmörg fyrirtæki hlotið nafnbótina "fjölskylduvænt fyrirtæki".

Óskað er eftir tilnefningum frá starfsmönnum fyrirtækja sem telja sinn vinnustað fjölskylduvænan.  Rökstuðningur starfsmanna og fjölskyldustefna fyrirtækisins þarf að fylgja með tilnefningunni.

Fjölskyldu- og félagsmálaráð fer yfir tilnefningar og viðurkenningar verða veittar á degi um málefni fjölskyldunnar sem haldinn verður  þann 26. febrúar 2011.

Tilnefningar þurfa að hafa borist fyrir 27. janúar til Fjölskyldu- og félagsþjónustu Reykjanesbæjar, Tjarnargötu 12, 230 Reykjanesbæ, merktar FJÖLSKYLDUVÆN FYRIRTÆKI.  Einnig má senda tilnefningar með netpósti á netfangið fjolskylda@reykjanesbaer.is.

Félagsmálastjórinn í  Reykjanesbæ