Stuðningur og viðhorf foreldra skiptir gríðarlegu máli

Unglingar í vinnuskólanum við störf að fegrun bæjarsins. Ljósmynd: Myndasafn Reykjanesbæjar
Unglingar í vinnuskólanum við störf að fegrun bæjarsins. Ljósmynd: Myndasafn Reykjanesbæjar

Heimili og skóli og Rannsóknir og greining bjóða upp á fræðslu fyrir foreldra barna í 8.-10. bekk og fyrstu bekkjum framhaldsskóla í Íþróttaakademíunni mánudaginn 5. mars kl. 17:00 - 19:00. Rannsóknir hafa sýnt að stuðningur og viðhorf foreldra skipta gríðarlegu máli þegar kemur að námsárangri, líðan og forvörnum gegn áfengis- og vímuefnaneyslu.

Dagskrá fundarins er eftirfarandi:

  • Hvernig líður börnunum okkar? Margrét Lilja Guðmundsdóttir sérfræðingur hjá Rannsóknum og greiningu og kennari á íþróttafræðisviði Háskólans í Reykjavík fjallar um niðurstöður rannsókna meðal barna og unglinga í ykkar sveitarfélagi.
  • Kaffihlé
  • Foreldrar eru bestir í forvörnum. Bryndís Jónsdóttir verkefnastjóri hjá Heimili og skóla fjallar um mikilvægi foreldra í forvörnum og 18 ára ábyrgð.

Lýðheilsusjóður og Velferðarsjóður styrkja verkefnið. Aðgangur að fræðslufundinum er ókeypis.