Styttist í Ljósanótt

Flugeldasýning á Ljósanótt
Flugeldasýning á Ljósanótt

Nú styttist í Ljósanótt sem haldin verður hátíðleg í 11. sinn dagana 2. - 5. september n.k.

Dagskrá hátíðarinnar er óðum að taka á sig mynd og er nú þegar hægt að skoða viðburði á ljosanott.is.

Enn er tekið á móti skráningum viðburða og geta þátttakendur sent þá beint inn á vef ljósanætur ásamt helstu upplýsingum og ljósmynd. Tekið er fram að skilafrestur í prentaða dagskrá er 19. ágúst.

Við hvetjum sem flesta bæjarbúa til að taka virkan þátt í hátíðinni líkt og venjulega og skreyta hús sín og garða nú eða hverfi með ljósi og öðru skemmtilegu sem kemur öllum í hátíðarskap.

Hægt er að kaupa ljósanæturfána hjá Merkiprenti og fyrirtæki sem vilja borða við Hafnargötuna geta haft samband við Víkurfréttir. Einnig er bent á skemmtilegt markaðsefni á ljósanótt.is sem er öllum frjálst til afnota s.s. íþrótta- eða tómstundafélögum sem geta t.d. selt boli, bolla eða fleira merkt Ljósanótt.

Þeir sem ætla að selja vörur eða veitingar þurfa að sækja um það leyfi á netfangið: ljosanott@reykjanesbaer.is eða hafa samband við Þjónustuver Reykjanesbæjar í síma 421 6700.