Tekið á móti FKA konum í Reykjanesbæ

Það voru þær Aðalheiður Júlírós Óskarsdóttir verkefnastjóri gæðamála, Ásdís Ragna Einarsdóttir verk…
Það voru þær Aðalheiður Júlírós Óskarsdóttir verkefnastjóri gæðamála, Ásdís Ragna Einarsdóttir verkefnastjóri lýðheilsumála, Ásta Kristín Guðmundsdóttir teymisstjóri alþjóðlegrar verndar og samræmdrar móttöku flóttafólks, Eydís Rós Ármannsdóttir verkefnastjóri Velferðarnets – Sterkrar framlínu, Halldóra G. Jónsdóttir aðstoðamaður bæjarstjóra, Hilma Hólmfríður Sigurðardóttir verkefnastjóri fjölmenningarmála og Þórdís Ósk Helgadóttir forstöðumaður Súlunnar verkefnastofu sem allar eru félagskonur í FKA.

Atvinnurekandadeild Félags kvenna í atvinnulífinu (AFKA) fór í sína árlegu vorferð á dögunum og var áfangastaðurinn Suðurnesin þetta árið.

Dagskráin var þétt sem náði yfir tvo daga og gisti hópurinn á Hótel Keflavík. Viðburðurinn er hugsaður sem tengslamyndun og vettvangur til að styðja við kvenleiðtoga í að sækja fram og auka þátttöku og sýnileika í atvinnulífinu.

Farið var í heimsóknir í fjölmörg fyrirtæki á Suðurnesjum, m.a. í Grindavík og Reykjanesbæ þar sem hópurinn fékk kynningu á starfsemi þeirra. Nokkrir stjórnendur og sérfræðingar hjá sveitarfélaginu Reykjanesbæ tóku á móti hópnum í bíó sal Duus húsa í lok dags á laugardeginum og kynntu sín störf og helstu verkefni.

Reykjanesbær þakkar AFKA konum kærlega fyrir heimsóknina.

Þau fyrirtæki sem hópurinn heimsótti eru:

Paloma, Vigt, Bryggjan, VP Verkstæði, Benchmark Genetics, Torfæru og Rallycross útgerðin, Orkustöðin, HS veitur, Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum MSS, Trendport, Reykjanesbær (Duus hús), Hótel Keflavík og KEF restaurant