Tilkynning vegna snjómoksturs

Vegna mikillar snjókomu hafa snjómoksturstæki okkar ekki undan núna.

Við leggjum höfuð áherslu á að halda stofnbrautum opnum og ráðum því miður ekki við meira á meðan svo mikill snjór fellur og skefur yfir götur og gangstéttir.

Tengigötur og húsagötur verða sennilega ekki ruddar fyrr en á morgun, sunnudaginn 18. desember. Allir eru að gera sitt besta til að halda götum og gönguleiðum færum.

Að gefnu tilefni er rétt að benda á að í flestum fjölbýlishúsahverfum og sumum raðhúsagötum er það húsfélaga og leigufélaga að sinna snjómokstri á bílastæðum þar sem ekki er um bæjarland að ræða.

Með fyrir fram þökk fyrir skilning og gott samstarf!